{"product_id":"fyrst-helt-eg-ad-eg-vaeri-ad-leita-ad-fridi","title":"Fyrst hélt ég að ég væri að leita að friði","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eHeimurinn er fullur af hljóðum sem ég heyri en geri oft ekki greinarmun á, svo það sem ég heyri er yfirleitt bara hávaði. Hávaði gerir hvaða manneskju sem er þreytta, jafnvel klikkaða, í mismiklu magni og styrkleika auðvitað. Ég er einhverf og ekki með góðan filter fyrir hljóðum svo ég er oft þreytt og sæki því oft í hvíld, sem er samt því miður ekki mjög aðgengileg fyrir mig þar sem nágrannar mínir eru oft með læti. \u003c\/span\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eNýlega hjálpaði móðir mín mér að festa kaup á litlum rafmagnssendibíl sem ég hef verið að vinna við að breyta í vinnustofu á hjólum, með svefnaðstöðu svo ég komist burtu, í friðinn.\u003c\/span\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eEn fram að því hef ég sótt mikið í að vera í skólanum, því nú er búið að þrífa hann betur en nokkru sinni fyrr, að minni ósk. Hann var svo skítugur að ég var veik alla síðustu haustönn. Já, ég er rosalega næm týpa. En út af þessari næmni þorði ég ekki að stunda þá áfanga sem ég hafði skráð mig í á vorönninni, þó það væri búið að þrífa og mér leið betur. Það varð til þess að ég neyddist til að fara í gjörningakúrs sem breytti svo lífi mínu.\u003c\/span\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eAf því að ég sótti meira en vanalega að vera í skólanum jukust tengslin við samnemendur mína og ég fór að fara í partý, sem mér þótti bara frekar skemmtilegt. Og svo hýsti ég eitt grillpartý sjálf, fyrir mig og samnemendur mína heima hjá móður minni og stjúpa!\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e2024\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eStærð: - \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eH:80cm x B:60cm\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"My Store","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52467592200556,"sku":null,"price":40000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0913\/6593\/3420\/files\/Fyrst_helt_eg_ad_eg_vaeri_ad_leita_ad_fridi_5.jpg?v=1754468852","url":"https:\/\/svavs.is\/products\/fyrst-helt-eg-ad-eg-vaeri-ad-leita-ad-fridi","provider":"svavs","version":"1.0","type":"link"}