{"product_id":"nia-fra-sudur-afriku","title":"Nia frá Suður Afríku","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eStærð með ramma - H:32,5cm x B:27cm\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eNia býr í litlu þorpi í Suður-Afríku með foreldrum sínum, systkinum, ömmu sinni, afa sínum, hundinum Bongo, einni kú sem heitir Prinsessa og geit sem heitir Elvis. Elvis hefur sérstakan áhuga á þvotti, heimavinnu og öllum pappírum sem skipta máli.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eHúsið þeirra er sjaldan hljótt. Það kraumar alltaf eitthvað: pottur á eldavélinni, útvarp í eldhúsinu, hundur að gelta út í loftið eða afi hennar að segja sögu sem byrjar á: „Þegar ég var ungur maður…”\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eNia er elst systkinanna. Þegar hún vaknar byrjar dagurinn hjá öllum hinum líka. Hún bindur skóreimar, finnur týndar vatnsflöskur og rekur litla bróður sinn út úr húsinu áður en hann nær að fela sig aftur bak við kúna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003ePabbi hennar bindur bækur inni í litlu verkstæði við húsið. Hillurnar eru fullar af rifnum kápum, nálum, þráðum og bókum sem lykta eins og ryk og rigning. Nia elskar að sitja hjá honum eftir skóla og horfa á hann vinna. Hann réttir henni stundum bók og segir: „Opnaðu hana.” Nia gerir það alltaf mjög varlega, eins og hún sé að opna eitthvað lifandi.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eMamma hennar eldar í grunnskólanum í þorpinu og allir krakkarnir þekkja hana. Sumir mæta í röðina bara til að sjá hvað hún hafi búið til þann daginn. Þegar það er kryddað baunaréttur klárast maturinn fyrst hjá henni. Nia er mjög stolt af því.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eEftir skóla hjálpar hún ömmu sinni að hengja upp þvott. Amma hennar syngur alltaf meðan hún vinnur, oft sömu lögin aftur og aftur. Nia kann þau öll utan að og syngur með án þess að hugsa um það.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÁ kvöldin safnast fjölskyldan oft saman úti fyrir húsið. Afi hennar situr í stól sem brakar í hvert skipti sem hann hallar sér aftur og segir sögur um fólk sem enginn annar man lengur. Litlu systkinin hlaupa um, hundurinn sefur í moldinni og Elvis geit reynir yfirleitt að borða eitthvað sem hún má alls ekki borða. Nia hlær hæst þegar einhver annar byrjar að hlægja fyrst. Hún er með stór, róleg augu sem taka eftir öllu: þegar mamma hennar er þreytt, þegar pabbi hennar er ánægður með bók sem hann lagaði, eða þegar einhver í skólanum situr einn of lengi.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eKennararnir í skólanum treysta henni. Litlu krakkarnir elta hana í frímínútum. Hundurinn sefur fyrir utan herbergið hennar á næturnar eins og það sé mikilvægt starf. Og stundum, þegar allt heimilið er sofnað, situr Nia ein úti undir stjörnunum með bók sem pabbi hennar batt sjálfur.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÞá finnst henni heimurinn bæði rosalega stór og mjög nálægur í einu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e---\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eNia lives in a small village in South Africa with her parents, siblings, grandmother, grandfather, the dog Bongo, a cow named Princess and a goat named Elvis. Elvis is particularly interested in laundry, homework, and all the paperwork that matters.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eTheir house is rarely quiet. Something is always simmering: a pot on the stove, a radio in the kitchen, a dog barking into the air, or her grandfather telling a story that begins: „When I was a young man…”\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eNia is the oldest of the siblings. When she wakes up, everyone else’s day begins the same way. She ties shoelaces, finds lost water bottles, and chases her little brother out of the house before he can hide behind the cow again.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eHer dad binds books in a small workshop attached to the house. The shelves are full of torn covers, needles, thread, and books that smell like dust and rain. Nia loves to sit with him after school and watch him work. Sometimes he hands her a book and says: „Open it.” Nia always does it very carefully, as if she is opening something alive.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eHer mother cooks at the village primary school and all the kids know her. Some people line up just to see what she has made that day. When it is a spicy bean dish, she is the first to finish her food. Nia is very proud of that.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eAfter school, she helps her grandmother hang out the washing. Her grandmother always sings while she works, often the same songs over and over. Nia knows them all by heart and sings along without thinking.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eIn the evenings, the family often gathers outside the house. Her grandfather sits in a chair that creaks every time he leans back and tells stories about people no one else remembers anymore. The little siblings run around, the dog sleeps in the dirt and Elvis the goat usually tries to eat something she is absolutely not allowed to eat. Nia laughs the loudest when someone else starts laughing first. She has big, calm eyes that notice everything: when her mom is tired, when her dad is happy with a book he edited or when someone at school sits alone for too long.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eThe teachers at school trust her. The little kids chase her around during recess. The dog sleeps outside her room at night as if it were an important job. And sometimes, when the whole family is asleep, Nia sits alone outside under the stars with a book that her dad bound himself.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eThen the world feels both very big and very close to her at the same time.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"svavs","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53807076180332,"sku":null,"price":15000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0913\/6593\/3420\/files\/IMG-2533.jpg?v=1779798076","url":"https:\/\/svavs.is\/products\/nia-fra-sudur-afriku","provider":"svavs","version":"1.0","type":"link"}