{"product_id":"renaissances-gellan","title":"Renaissances gellan","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eStærð með ramma: H:58cm x B:48\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÞessi kona situr þarna eins og einhver hafi byrjað að mála mjög virðulegt hefðarkonuportrét og síðan smám saman misst áhugann á því að hlýða reglum. Fyrst kemur kjóllinn, perlufestin og þessi mjúka klassíska stelling sem segir manni að maður eigi líklega að taka myndina alvarlega. Svo tekur líkaminn bara sínar eigin ákvarðanir.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHendurnar verða að löngum kolkrabbakenndum útlimunum sem flæða niður myndina eins og þær nenni ekki að stoppa þar sem venjulegar hendur eiga að enda. Þær líta út eins og þær geti bæði strokið þér um kinn og dregið þig niður á hafsbotninn ef þær eru í þannig skapi. Og svo er það hvíta stöff sínhvoru megin við höfuðið á henni sem virðist beinlínis vera hannað til að pirra fólk sem þarf að skilja allt.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eEru þetta vængir?\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eEyru?\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eTígó?\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eMjúkt hold?\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eAndleg uppljómun?\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eLéleg ákvörðun?\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eMyndin svarar auðvitað engu af þessu vegna þess að hún hefur greinilega engan áhuga á að vinna með fólki sem þarf alltaf skýringar. Hún situr bara þarna og lætur áhorfandann svitna aðeins í eigin þörf fyrir merkingu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÞað er líka eitthvað dásamlegt við það hvað hún tekur mikið pláss. Hún er feit á hátt sem myndin afsakar ekki, útskýrir ekki, enda þarf ekkert að útskýra feitar konur. Hún er bara stór, mjúk og til staðar eins og drottning sem hefur aldrei á ævinni beðið um minni disk eða \u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003cb id=\"docs-internal-guid-9cdbefcf-7fff-f127-83c6-d2c6cc00e949\"\u003e„\u003c\/b\u003ebetra sjónarhorn” þegar verið er að taka ljósmyndir af henni.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eOg augnaráðið...\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÞetta er augnaráð konu sem hefur hlustað á fólk tala mjög lengi og komist að þeirri niðurstöðu að flestir séu eiginlega bara að improvísera með miklu sjálfstrausti.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eLitirnir gera myndina svo enn skrýtnari á besta mögulega hátt. Kjóllinn er næstum konunglegur, djúpur og dramatískur, meðan bleiku útlimirnir líta út eins og eitthvað sem hafi skriðið inn úr allt annarri mynd. Útkoman verður einhvers konar blanda af endurreisnarmálverki, fever dream og mjög sérviskulegri sjávarlíffræði.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eKannski er hún engill.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eKannski sjávarguð.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eKannski rík ekkja með mjög sérstakan fatastíl.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eKannski kona sem vaknaði einn morguninn og ákvað að mannslíkaminn hefði verið alltof takmarkaður hingað til.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eOg satt að segja þarf ekkert að ákveða það.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÞað er eiginlega fegurðin í myndinni. Ef þú spyrð mig. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHún neitar að verða þægileg. Hún neitar að vera alveg skiljanleg. Hún situr bara þarna í perlufestinni sinni með kolkrabbahendurnar sínar og lætur fólk glíma við eigin þörf fyrir skýrar línur og útskýranlega hluti.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eSem er mjög dónalegt af henni.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eOg alveg frábært.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e---\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThis woman sits there as if someone started painting a very respectable portrait of a traditional woman and then gradually lost interest in obeying the rules. First comes the dress, the pearl necklace, and that soft, classical pose that tells you that you should probably take the picture seriously. Then the body just makes its own decisions.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHer hands become long, octopus-like limbs that flow down the picture as if they don't care to stop where normal hands are supposed to end. They look like they could both stroke your cheek and drag you to the bottom of the ocean if they were in that mood. And then there's that white thing on each side of her head that seems designed to annoy people who need to understand everything.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAre those wings?\u003cbr\u003eEars?\u003cbr\u003eA tigress?\u003cbr\u003eSoft flesh?\u003cbr\u003eSpiritual enlightenment?\u003cbr\u003ePoor decision-making?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThe painting, of course, doesn’t answer any of this because it clearly has no interest in working with people who always need explanations. It just sits there and makes the viewer sweat a little in its own need for meaning.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThere’s also something wonderful about how much space she takes up. She’s fat in a way that the painting doesn’t excuse, doesn’t explain. Besides there is no need to explain fat women. She’s just big, soft, and present like a queen who has never in her life asked for a smaller plate or a “better angle” in a photoshoot.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAnd the look in her eyes...\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIt’s the look of a woman who has listened to people talk for a very long time and has come to the conclusion that most of them are really just improvising with great confidence.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThe colors make the painting even weirder in the best possible way. The dress is almost regal, deep and dramatic, while the pink limbs look like something that has crawled in from a completely different painting. The result will be some kind of cross between a Renaissance painting, a fever dream and some very eccentric marine biology.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaybe she's an angel.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaybe a sea god.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaybe a rich widow with a very particular style of clothing.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaybe a woman who woke up one morning and decided that the human body had been far too limited up until now.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAnd honestly, there's no need to decide that.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThat's really the beauty of the painting. If you ask me.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eShe refuses to be comfortable. She refuses to be completely understood. She just sits there in her pearl necklace with her octopus hands and makes people struggle with their own need for clear lines and explainable things.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eWhich is very rude of her.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAnd absolutely brilliant.\u003c\/p\u003e","brand":"svavs","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53808069116268,"sku":null,"price":40000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0913\/6593\/3420\/files\/IMG-2668.jpg?v=1779814842","url":"https:\/\/svavs.is\/products\/renaissances-gellan","provider":"svavs","version":"1.0","type":"link"}