{"product_id":"sjadu-mig-annad-verk","title":"Sjáðu mig. Annað verk.","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eStærð: H:56,5cm x B:79cm.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e“Sjáðu mig”\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e var þátttökugjörningur þar sem listamaður sat fyrir og gestir tóku þátt í að mála eina sameiginlega mynd.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eFyrir framan hann var strigi á trönum og á borði við hliðina voru litir, vatn og penslar.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eVerkið snýst um nærveru, athygli, samveru og tíma.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eÞað fjallar um að sjá og vera séð, hvort sem er með augunum einum og eða opnu hugarfari og innsæi.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eGestir máttu einnig spyrja listamanninn spurninga, hvort sem það er af forvitni eða til að sjá hann betur.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eVerkið bauð upp á stund þar sem fólk fékk að vera hluti af ferli án þess að þurfa að ná árangri eða fullkomnun. \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eHver þátttakandi hafði eina mínútu til að mála.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eÞessi stutti tími skapaði rými þar sem hugsun og stjórn viku fyrir innsæi og leikgleði. Þannig varð myndin lifandi, óútreiknanleg og heiðarleg, rétt eins og lífið sjálft.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eLitir blandast, form renna saman og það sem það sat eftir var stóra myndin (The Big Picture) sem vísar í það að þó þú skiptir óendanlega miklu máli, þá skiptiru ekki öllu máli því þú ert ekki einn í heiminum. Þú ert partur af heild. Mikilvægur partur, af heild. Og svo það sé sagt þá er ég mjög þakklát fyrir það að þú sért hérna. Ekkert endilega fyrir mig, heldur fyrir þá sem eru í þínu lífi og vilja hafa þig í sínu lífi.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÞað sem við gerum hefur oft áhrif sem við vitum jafnvel ekki af.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eKannski hvarf liturinn sem þú málaðir undir annan lit, en samt áttir þú þátt í að skapa heildina. Þú gætir hafa veitt næstu manneskju innblástur. Kannski tókstu fyrsta skrefið, sem er oft talið vera erfiðasta skrefið.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÞetta er einmitt kjarni verksins: að minna á að við skiljum alltaf eitthvað eftir, jafnvel þótt enginn sjái það lengur.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÁ borðinu lá blað þar sem hægt var að skrifa nafn sitt, fyrir þá sem það vildu. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eMyndin sem varð til var sameiginlegt verk margra; sambland sjónarhorna, ákvarðana og augnabliks sem gerast í sameiginlegu flæði.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e---\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e“See Me” was a participatory performance where an artist sat in front of the audience and guests participated in painting a single collective picture.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eIn front of him was a canvas and on a table next to it were paints, water and brushes.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThe work is about presence, attention, togetherness and time.\u003cbr\u003eIt is about seeing and being seen, whether with one’s eyes alone or with an open mind and intuition.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGuests were also allowed to ask the artist questions, whether out of curiosity or to see him better.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThe work offered a moment where people could be part of a process without having to achieve success or perfection.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEach participant had a minute to paint.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThis short time created a space where thought and control gave way to intuition and playfulness. In this way, the picture became alive, unpredictable and honest, just like life itself.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eColors blend, shapes merge, and what was left was The Big Picture, which suggests that although you matter infinitely, you don't matter all that much because you are not alone in the world. You are part of a whole. An important part, of a whole. And that being said, I am very grateful that you are here. Not necessarily for me, but for those who are in your life and want you in theirs.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eWhat we do often has an impact that we are not even aware of.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMaybe the color you painted under another color disappeared, but you still played a part in creating the whole. You may have inspired the next person. Maybe you took the first step, which is often considered the hardest step.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThis is precisely the essence of the work: to remind us that we always leave something behind, even if no one sees it anymore.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOn the table was a sheet of paper where you could write your name, for those who wanted to.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eThe resulting film was the collective work of many; a combination of perspectives, decisions, and moments happening in a shared flow.\u003c\/p\u003e","brand":"svavs","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53841883070828,"sku":null,"price":35000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0913\/6593\/3420\/files\/image00008.jpg?v=1780421423","url":"https:\/\/svavs.is\/products\/sjadu-mig-annad-verk","provider":"svavs","version":"1.0","type":"link"}