{"product_id":"verk-i-vinnslu","title":"Verk í vinnslu","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÉg lá í sófanum svo vikum skipti eins og slitið tau, föst í eigin líkama sem var bæði skjól og fangelsi. Eins og þessi fígúra í málverkinu, augu sem stara út í tómið, með hönd sem teygir sig út í ómögulega átt. Ég man hvernig það var að teygja sig en ekki komast neitt. Að reyna að halda áfram þegar allt í kringum mig var óskiljanlegt og í uppnámi.\u003c\/span\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÉg mætti með skottið á milli lappanna, skíthrædd við það sem koma skyldi og það kom sem vildi koma og nú er ég ný kona.\u003c\/span\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÉg hef brotist út úr skuggunum sem umkringdu mig. Þessi handleggur í málverkinu er eins og mín eigin von, þó skelfing og óvissa hafi grípað mig. Það er eitthvað óútreiknanlegt í þessum litum, eins og þeir dansi á milli lífs og dauða og ég stend þarna á milli tilbúin að taka við því sem lífið hefur upp á að bjóða, þó ég viti ekki hvað það er.\u003c\/span\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÉg er ekki lengur týnd. Ég er enn óörugg, en ég er líka sterkari. Nú er þessi kona í speglinum, og í málverkinu, tilbúin að mæta sjálfri sér, og öllum sínum skrímslum (ish). Þetta málverk er minning um það þegar ég var föst og líka vitnisburður um að ég er komin áfram. Einn dagur í einu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e2011-2025\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eStærð með ramma - \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eH:21,3cm x B:62cm\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"My Store","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52467607404908,"sku":null,"price":20000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0913\/6593\/3420\/files\/20250801_161629.jpg?v=1754468681","url":"https:\/\/svavs.is\/products\/verk-i-vinnslu","provider":"svavs","version":"1.0","type":"link"}