Ástæða nr. 58.000
Það eru mánaðamót. Ég er búin að borga alla reikninga. Allt sem þurfti. Leigu, rafmagn, nettenginguna, allt þetta sem gerir það mögulegt að vera manneskja í samfélaginu. Eftir stendur: 58.000 krónur. Það er það sem ég á til að lifa á út mánuðinn.
Og ég fæ hálfgert hland fyrir hjartað. Ekki ofsaleg örvænting – bara kuldahrollur af staðreynd. Þetta verður ekki nóg. Ekki nema ég geri eitthvað.
Og þar kemur netverslunin mín til sögunnar. Ekki út af einhverjum brjálæðislegum metnaði eða markaðsáætlun sem ég vann í sex mánuði. Heldur af nauð. Ef neyðin kennir naktri konu að spinna, þá er ég kviknakin heima hjá mér að læra á Shopify, taka myndir, finna út úr sendingarkostnaði og reyna að muna hvernig maður skrifar vörulýsingu sem selur án þess að æla innra með sér.
Það fyndna (og sorglega, og fallega) er að ég hef svo oft verið beðin um þetta. Fólk hefur sagt: „Mig langar að geta skoðað listina þína einhvers staðar.“ Eða: „Mig er búið að langa lengi í málverk eftir þig.“ Það eru orð sem hljóma eins og ást. Eins og viðurkenning. Eins og að einhver hafi geymt draum í brjósti sér sem tengist einhverju sem ég hef skapað. Það er svo fallegt að ég fæ tár í augun – og samt hef ég aldrei fundið mig í því að vera „með netverslun“.
En núna finn ég að þetta er ekki um mig að selja. Þetta er ég að segja já. Já við því að fólk megi sjá, megi vilja, megi eignast. Þetta er ég að gefa listinni minni tækifæri til að halda áfram út úr mér og inn á annarra heimili. Þetta er líka ég að leyfa mér að lifa. Ekki bara andlega, heldur líka bókstaflega: að eiga fyrir mat, reikningum, eða nýjum sokkum fyrir son minn.
Kannski er þetta líka nei. Nei við skömm, nei við því að þurfa alltaf hjálp, nei við því að bíða eftir því að einhver annar komi og bjargi mér. Ég ætla að reyna að bjarga mér sjálf. Með pensli. Með orðum. Með Shopify?
Netverslunin mín er eins konar fæðing. Þar sem manneskja sest nakin á gólfið og ákveður að taka sjálfa sig alvarlega. Þetta er verslun úr brotum, dósalit (já það er orð en ég veit ekki hvað það þýðir), kvíða og kærleika. Og það besta sem ég get sagt er: hún er til.