Refund policy

Skilmálar – svavs

Nafn: svavs
Kennitala: [070588-2269]
Netfang: svavs28@gmail.com

 


 

1. Almenn ákvæði

svavs áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða ef hætt er við að bjóða tiltekna vöru án fyrirvara. Einnig áskiljum við okkur rétt til að staðfesta pantanir símleiðis ef þörf krefur.

 


 

2. Afhending vöru

Pantanir eru afgreiddar einu sinni í viku, að jafnaði. Sé varan ekki til á lager verður haft samband við viðskiptavin til að upplýsa um áætlaðan afhendingartíma.

Allar* sendingar fara með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um sendinguna. svavs ber ekki ábyrgð á týndum eða skemmdum vörum eftir að sending hefur verið afhent Íslandspósti.

 


 

3. Verð og sendingarkostnaður

Öll verð í vefversluninni eru án virðisaukaskatts. Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.

Vörur eru sendar með Íslandspósti beint heim að dyrum. Ef pakkinn kemst ekki í póstlúgu og móttakandi er ekki heima, fer hann á næsta pósthús.
Sendingarkostnaður er 500 kr.

*Við sérstök tilefni gæti starfsfólk svavs keyrt vörur út í stað Íslandspósts – þá gildir sama gjald.

 


 

4. Skil og skipti

Veittur er 14 daga skilaréttur frá móttöku vöru, gegn því að sölureikningi sé framvísað. Varan skal vera ónotuð, heil og í upprunalegri pakkningu.

Við skil á vöru er miðað við það verð sem hún er seld á við skil, sérstaklega ef um útsöluvöru eða sértilboð er að ræða. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra, er gefin út inneignarnóta í formi afsláttarkóða sem hægt er að nota við næstu kaup.
Sendingar- og flutningskostnaður er ekki endurgreiddur.

 


 

5. Gölluð vara

Sé vara gölluð býður svavs viðskiptavinum annað eintak í staðinn og greiðir allan sendingarkostnað. Ef óskað er eftir endurgreiðslu í stað skiptis, er það einnig mögulegt.

 


 

6. Lög og reglur

Viðskiptin fara eftir lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lögum um neytendakaup.

 


 

7. Trúnaður / Öryggisskilmálar

Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem gefnar eru upp í tengslum við kaupin. Engar upplýsingar verða afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

 


 

8. Lög og varnarþing

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur skal mál vera rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.