Um mig
Hæ ég heiti Svava Dögg Ugluspegill, og undir listamannanafninu svavs leita ég jafnvægis milli orða og mynda, milli skýrrar merkingar og þess sem lætur á sér standa. Ég er einhverf listakona og rithöfundur, og einhverfan mín er ekki bara hluti af mér – hún er linsa sem ég lít í gegnum, leið mín til að túlka heiminn og lifa í honum.
Ég vinn með myndlist, texta, handverk og húmor og stundum allt í senn. Verkin mín spretta oft upp úr hversdagsleikanum, úr árekstrum milli skynjunar og væntinga, úr gleði og þreytu, einveru og þrá. Ég kann vel við litla hluti með stóra merkingu og stóra hluti með enga merkingu. Gagngert lítilfjörlegar sögur sem bera í sér tilveruna sjálfa. Ég nota það sem ég hef: bletti, brot, misskiling, tilfinningu, kaldhæðni, liti – og úr því verður verk sem segir mér hvað ég sé að hugsa, hvernig mér líður og hvað mér finnst um pólitísk málefni líðandi stunda.
Einhverfan mín mótar hvernig ég skynja heiminn og hvernig ég skapa í honum. Ég hef alltaf verið næm, á litbrigði í röddum, á áreiti sem öðrum finnst eðlilegt, á óskráðar reglur sem virðast skrifaðar með ósýnilegu bleki. Þegar ég bjó til mitt eigið rými til að vinna í, fattaði ég að þar þurfti engar slíkar reglur að gilda. Þar má öskra (en samt helst ekki) eða þegja, þar má klippa, lita, þrykkja, skrifa, mála eða brenna út – alveg eftir duttlungum dagsins. Listin mín verður oft til úr því sem var erfitt að segja. Hún verður brú á milli mín og heimsins. Og stundum – milli mín og sjálfrar mín.
Í þessari netverslun finnurðu hluti sem ég hef búið til með hjartanu, höndunum og hausnum – og stundum líka með húmor. Þar eru bækur og zínur sem segja sögur sem sjaldan eru sagðar. Þar eru prentverk og kort sem minna þig á hluti sem kannski enginn hefur sagt við þig áður, en þú þarft samt að heyra. Þar eru málverk, litlir hlutir, og stundum skrýtnir hlutir, sem mega vera til – eins og þau eru.
Mér finnst gaman þegar hlutir vekja tilfinningar, frekar en að vera bara fallegir. Þeir mega vera skakkir, sárir, fyndnir, ó þ æ g i l e g i r, eða ótrúlega mjúkir. Þeir mega segja „ég sé þig“ – sérstaklega ef þú hefur ekki alltaf fundið þig heima í heiminum.
svavs er ekki bara nafn. Það er pláss. Það er staður fyrir þá sem elska orð og myndir, sem finna frið í skrítnum hlutum, og sem langar að kaupa eitthvað sem einhver bjó til af alvöru.
Takk fyrir að koma við. Ég vona að þú finnir eitthvað sem talar til þín.
