Skip to product information
1 of 2

My Store

Bangsabolur

Bangsabolur

Regular price 5.000 ISK
Regular price Sale price 5.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.
Size
Quantity

Málverkið sem er prentað á bakhlið stuttermabolsins var málað í mars 2022 og er í eigu sonar míns. Hann segir að þetta sé fallegasta málverk í öllum heiminum og hvatti mig til að búa til þessa boli, sem eru úr lífrænni bómull.

Málverkið heitir: Ég er hunang.

Ég var í markþjálfunarnámi til að kynnast sjálfri mér betur. Í einum tíma­num fékk ég að vera tilraunadýr marksækjanda (það er sá sem fer til markþjálfa). Þá var kennarinn markþjálfinn til að leyfa hinum nemendunum að fylgjast með töfrunum. Þegar hún spurði mig hvað ég vildi tala um sagðist ég hafa áhuga á því að finna út úr því hvert mitt kjarnahlutverk væri, hver ég væri. 

Mér fannst ég vera úr einhverju hreyfanlegu efni. Það sást í gegnum það. Það var ekki alveg eins og leir en samt ekki heldur hlaup. Það var gult eða brúnt eða gyllt, það var eiginlega eins og hunang. Þá sá ég fyrir mér hunangið sem við áttum þegar ég var krakki. Túpan var í laginu eins og sitjandi bangsi og í minningunni var toppurinn rauður en þegar ég leitaði að þessum hunangsbangsa á netinu þá sá ég að toppurinn var sennilega gulur en lokið á toppnum var rauður. Besta mál, besta mál.

Í miðju hunanginu, sem var nú orðin myndlíking fyrir mig sjálfa, var mangófræ, ekki steinninn sem aldinkjötið festist við heldur fræið sem er inni í steininum. Það átti að tákna kjarnann minn sem við ætl­uðum að reyna að krifja í þessu samtali. Við héldum áfram að ræða þetta og komumst að því að þegar ég verð reið þá kemur reiðin út á einn hátt eða annan. Það verður ekki hjá því komist. Þegar eitthvað þrengir að manni þá kemur eitthvað út á öðrum stað. Eins og þegar hunangs­túpa er kreist þá fer hunangið út að ofan. Ef hún er kreist af krafti þá sprautast af krafti og hver hefur þá stjórnina á því hvert hunangið lendir? Það er í lagi að vera reiður en það er ekki í lagi að það biti á þeim sem eiga það ekki skilið. Eða það finnst mér, held ég.

Í þessu samtali við markþjálfann komust við líka að því að hægra megin við kjarnann, mangófræið, var gulur hlaupbanani. Hann táknaði persónuleika minn. Ég er ekki ennþá viss hvernig ég eigi (eða geti) lesið úr því. Persónuleikinn minn er gulur nammibanani...

Jæja, við frekari athugun mátti finna ýmislegt fljótandi í gyllta gagksæa efninu. Allt á hreyfingu, eins og allt er. Stundum líður mér svona og stundum hinsegin og stundum ekki. Stundum hef ég bullandi áhugsa á þessu en næsta dag er það hitt. Það er allt á hreyfingu og það er gott. Andstæðan við hreyfingu er legusár, eða þústs... í þessu samhengi.

Hálft mangófræ er límt á bakhlið málverksins, beint fyrir aftan miðjuna á bansansnum sem hefur fengið nafnið Ási en það er önnur saga sem enginn man lengur. Hefur mögulega eitthvað með Vestmannaeyjar að gera...

Kjarninn minn er ég. Og hvað er ég? Ég bara er. Yfirleitt nóg.

Hver er þinn kjarni?

 

View full details