Skip to product information
1 of 2

svavs

Bjarni Bjarndal

Bjarni Bjarndal

Regular price 8.000 ISK
Regular price Sale price 8.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.
Quantity

Stærð: - H:34cm x B:18cm

Bangsinn heitir Bjarni Bjarndal. Hann er ekki venjulegur bangsi. Hann er fyrrverandi bókasafnsvörður. Af því að hann mætti bara einn daginn og fór að haga sér eins og hann ætti staðinn. Í fyrstu reyndi starfsfólkið að fjarlægja hann. En það kom alltaf upp eitthvað skrítið vesen þegar hann var ekki nálægt. Fólk fann ekki bækurnar sínar. Prentarinn bilaði. Einhver grét yfir ritgerð um þorska. Kaffivélin gaf bara volgt vatn og nautþunnan niðurgang.

Svo að endingu var bangsanum bara leyft að vera.

Bjarni sat alla daga í litlum stól fyrir aftan afgreiðsluborðið með pínulitlu gleraugun sín sem hann fann í dúkkuhúsi uppi á háalofti 1998. Enginn veit alveg hvernig hann sér í gegnum þau því glerin eru líklega bara sægrænar konfektumbúðir.

Hann talaði mjög sjaldan. En þegar hann talaði sagði hann hluti eins og: „Þú ert að leita að bók sem þú heldur að sé um víkinga en er í rauninni um sorg.” eða: „Ekki treysta fólki sem brýtur saman horn í bókum. Það byrjar þar.” Það veit samt enginn hvað þetta það er og þegar hann er spurður gefur hann þeim hneykslanlegt augnaráð og gengur í burtu.

Krakkarnir elskuðu hann. Fullorðna fólkið var örlítið stressað í kringum hann. Á kvöldin, þegar bókasafnið lokaði, gekk Bjarni hljóðlega á milli hillanna og lagaði bækur sem höfðu orðið leiðar á því að vera rangt flokkaðar. Hann hataði sérstaklega þegar sjálfshjálparbækur enduðu hjá hryllingssögum. „Þær vita alveg sjálfar hvar þær eiga heima,” muldraði hann stundum.

Eina nóttina kom nýr öryggisvörður í húsið og sá lítinn bangsa með gleraugu labba í gegnum gangana með tebolla. Öryggisvörðurinn sagði upp daginn eftir. Núna býr Bjarni enn einhvers staðar inni á gömlu bókasafni sem enginn fer mikið á lengur. Ef maður kemur þangað mjög seint þegar það rignir úti og dregur út réttu bókina getur maður stundum fundið lítinn miða inni í henni. Á honum stendur yfirleitt eitthvað eins og: „Þessi bók fann þig fyrst.”

---

The teddy bear is called Bjarni Bjarndal. He is no ordinary teddy bear. He is a former librarian. Because he just showed up one day and started acting like he owned the place. At first, the staff tried to remove him. But there was always some strange trouble when he was not around. People couldn’t find their books. The printer broke down. Someone cried over an essay about cod. The coffee machine only gave out lukewarm water and beef-thin diarrhea.

So in the end, the teddy bear was just allowed to stay.

Bjarni sat every day in a small chair behind the counter with his tiny glasses that he found in a doll’s house in the attic in 1998. No one really knows how he sees through them because the glasses are probably just sea-green candy wrappers.

He spoke very rarely. But when he did, he said things like: “You think you are looking for a book about Vikings but it is actually about grief.” or: “Don’t trust people who fold corners in books. It starts there.” Nobody knows what it is, though, and when asked, he gives them a shocked look and walks away.

The kids loved him. The adults were a little nervous around him. In the evenings, when the library closed, Bjarni would quietly walk between the shelves, fixing books that had gotten tired of being miscategorized. He especially hated it when self-help books ended up next to horror stories. “They know exactly where they belong,” he would sometimes mutter.

One night, a new security guard came to the building and saw a little teddy bear with glasses walking through the aisles with a cup of tea. The security guard quit the next day. Now Bjarni still lives somewhere in an old library that no one goes to much anymore. If you get there very late when it’s raining outside and pull out the right book, you can sometimes find a little note inside it. It usually says something like: "This book found you first."

View full details