svavs
Elísabet
Elísabet
Couldn't load pickup availability
Hún heitir Elísabet, en allir kalla hana Betu nema amma hennar sem neitar að stytta nöfn af prinsipástæðum. Hún lítur út eins og kona sem veit nákvæmlega hvað fólk sagði um hana í menntaskóla og fannst það allt frekar fyndið. Beta vinnur á snyrtistofu sem breytist hægt og rólega í óopinbera meðferðarstöð fyrir konur hverfisins. Fólk kemur auðvitað í plokkun og litun, en endar svo að tala um skilnaði, senda fyrrverandi skilaboð inni á klósetti, eða gráta yfir kaffibolla með of miklum sykri. Beta hefur séð allt. Hún hefur einu sinni klippt af konu hárkollu óvart, fengið borgað í humri og bannað tveimur fullorðnum systrum að rífast inni í biðstofunni eins og þær væru átta ára. Augun hennar eru svona stór af því hún elskar slúður. Safaríkt slúður. Hún vill vita, hver kyssti hvern fyrir utan sjoppuna, hver fór leynilega til Tenerife með Pilateskennaranum, og af hverju Gunna á hæðinni fyrir ofan er allt í einu farin að kaupa rauðan varalit aftur.
Beta man líka allt. ALLT. Ef þú sagðir henni árið 2017 að þú værir kannski að hugsa um að læra sálfræði, þá mun hún spyrja þig sjö árum síðar „Jæja hvernig gengur í sálfræðinni?”
Hún er með langan háls af því hún eyðir helmingnum af lífinu í að halla sér fram og segja „NEI. Segðu mér ALLT.”
Perlufestin fékk hún frá ömmu sinni sem sagði „Konur eiga alltaf að hafa eitthvað fallegt nálægt hálsinum ef þær ætla að segja sannleikann.” Beta veit ekki alveg hvað það þýðir, en hún notar festina samt næstum á hverjum degi.
Á föstudagskvöldum situr hún úti á svölum með gos í vínglasi af því henni finnst það „líta út eins og maður hafi stjórn á lífinu.” Svo hringir hún í vinkonu sína og segir „Ég ætla bara að vera heima í rólegheitum.” Tveimur tímum síðar er hún yfirleitt byrjuð að dansa einhvers staðar þar sem enginn ætlaði sér upphaflega að fara.
---------------------------------------------------------------------------------------
Her name is Elizabeth, but everyone calls her Beta except her grandmother, who refuses to shorten her name on principle. She looks like a woman who knows exactly what people said about her in high school and finds it all rather funny. Beta works at a beauty salon that is slowly turning into an unofficial rehabilitation treatment center for the women in the neighbourhood. People initially come in for plucking and coloring, of course, but then end up talking about divorce, texting their ex in the bathroom or crying over a cup of coffee with too much sugar. Beta has seen it all. She has once accidentally cut off a woman's wig, been paid in lobster and stopped two grown sisters from arguing in the waiting room like they were eight years old. Her eyes are so big because she loves gossip. Juicy gossip. She wants to know who kissed who outside the convenience store, who secretly went to Tenerife with the Pilates teacher and why Gunna from upstairs has suddenly started buying red lipstick again.
Beta also remembers everything. EVERYTHING. If you told her in 2017 that you were maybe thinking about studying psychology, she’ll ask you seven years later, „So, how’s psychology going?”
She has a long neck because she spends half her life leaning forward and saying „NO. Tell me EVERYTHING.”
She got her pearl necklace from her grandmother, who said, „Women should always have something beautiful around their neck if they’re going to tell the truth.” Beta doesn’t really know what that means, but she still wears it almost every day.
On Friday nights, she sits out on the balcony with a club soda in a wineglass because she thinks it „makes you feel like you’re in control of your life.” Then she calls her friend and says, „I’m just going to stay home and relax.” Two hours later, she’s usually dancing somewhere no one was originally planning to go.
Share
