My Store
Fjall
Fjall
Couldn't load pickup availability
Það blasir við mér. Stórt, þögult og óhagganlegt. Fyrst fannst mér það fjarlægt – eins og eitthvað sem aðeins aðrir gætu sigrað. Ég horfði á það og hugsaði með mér að það væri ómögulegt að komast alla leið. En samt byrjaði ég að ganga. Eitt skref, svo annað. Stundum rann ég til, fór niður aftur, vildi snúa við. En það var eitthvað við sjálfa gönguna – þessa endurtekningu, þetta púsl – sem hélt mér gangandi.
Það eru brekkur í lífinu. Þær koma í alls konar myndum: veikindi, ótti, efi, höfnun, sjálfsvafi. Þær láta okkur efast um hvort við séum nógu sterk. En svo kemur þessi stund, þegar maður stendur hálfvegis upp fjallið og lítur niður – sér leiðina sem maður hefur farið. Þá breytist eitthvað. Það er ekki lengur bara toppurinn sem skiptir máli, heldur það að vera á leiðinni, að halda áfram, að velja að hætta ekki.
Fjallið er tákn. Fyrir það sem hræðir mig. Fyrir það sem ég vil. Fyrir styrk sem ég vissi ekki að ég hefði. Og þegar ég stend loks efst, sama hversu lítið eða hátt það virðist í augum annarra, þá veit ég: ég komst alla leið. Og það var ég sjálf sem steig öll skrefin.
Hvert fjall sem við klífum mótar okkur. Ekki til að sýna heiminum að við getum það – heldur okkur sjálfum.
2024
Stærð: A3 - H380cm x B:28cm
Án ramma.
Share
