Skip to product information
1 of 2

svavs

Lucas frá Kenya

Lucas frá Kenya

Regular price 20.000 ISK
Regular price Sale price 20.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.
Quantity

Stærð með ramma - H:42cm x B:32cm

Lucas vaknaði áður en sólin náði alveg yfir þökin í litla hverfinu rétt fyrir utan Nairobi. Það var enn svalt í loftinu og börnin hans sváfu þvers og kruss undir ljósu moskítóneti í rúminu við gluggann sem var einnig hulinn moskítóneti því það er aldrei hægt að passa sig of mikið á þessum kvikindum. Hann stóð smá stund kyrr og hlustaði á andardráttinn þeirra áður en hann fór fram í eldhúskrókinn. Á borðinu lá ananas sem hann hafði keypt daginn áður á markaðnum. Hann var óþarflega lengi að velja hann því hann vildi finna þann sætasta því honum fannst börnin sín eiga það besta skilið. Lucas hafði alltaf verið þannig. Hann átti ekki mikið en hann gaf hlutum samt athygli. Hvort sem það var matur, tónlist eða fólk.

Í horninu stóð appelsínugulur bakki sem hafði fylgt honum í mörg ár. Hann setti ananasinn á bakkann og hélt honum upp aðeins eins og hann væri að skoða listaverk. Hann hafði lært að skera ananas frá móður sinni þegar hann var ungur strákur og enn í dag heyrði hann rödd hennar í hausnum „Ekki flýta þér. Góður matur á skilið tíma.”

Úti heyrðist mótorhjól keyra framhjá og einhver kalla til nágranna síns. Dagurinn var að byrja. Þriggja ára sonur hans vaknaði fyrstur og kom gangandi syfjaður fram á gólfið. „Pabbi, er þetta fyrir okkur?” Lucas brosti án þess að snúa sér við. „Kannski, ef þið eruð stillt og góð börn.” Hann glotti út í annað, hann var að stríða nývöknuðu barninu. „Pabbi, er ég góður strákur?” spurði strákurinn strax. Lucas leit yfir öxlina og reyndi að halda alvörusvip þó hann væri að springa úr stolti og langaði að brosa allan hringinn því honum fannst börnin sín vera bestu börnin í heiminum. „Hmm. leyfðu mér aðeins að hugsa málið.” Drengurinn lagaði strax líkamsstöðuna sína og reyndi að líta út eins og besta barn í heimi. Þó það hafi enga sérstakt útlit, að vera besta barn í heimi.

Og í þessum litla eldhúskrók, með berar tær á köldu gólfinu og morgunljósið yfir ananasinum, fann Lucas að þó lífið væri stundum erfitt þá var hann hamingjusamur.

---

Lucas woke up before the sun had fully risen over the rooftops of the small neighborhood just outside Nairobi. The air was still cool and his children were sleeping crosswise under a light mosquito net in the bed by the window, which was also covered with a mosquito net because you can never be too careful with these bastards. He stood still for a moment, listening to their breathing, before going into the kitchenette. 

On the table was a pineapple that he had bought the day before at the market. He took an unnecessarily long time to choose it because he wanted to find the sweetest one because he felt that his children deserved the best. Lucas had always been like that. He didn’t have much, but he still paid attention to things. Whether it was food, music, or people. In the corner stood an orange tray that had accompanied him for many years. He placed the pineapple on the tray and held it up slightly as if he were looking at a piece of art. He had learned to cut a pineapple from his mother when he was a young boy, and to this day he could still hear her voice in his head, „Don’t rush. Good food deserves time.”

Outside, a motorcycle could be heard driving by and someone calling out to his neighbor. The day was beginning. His three-year-old son woke up first and came walking sleepily across the floor. „Daddy, is this for us?” Lucas smiled without turning around. „Maybe, if you’re good kids.” He grinned, teasing the newly awakened child. „Daddy, am I a good boy?” the boy asked immediately. Lucas looked over his shoulder, trying to keep a serious expression on his face even though he was bursting with pride and wanted to smile all the time because he thought his children were the best children in the world. „Hmm. Let me think about it.” The boy immediately adjusted his posture and tried to look like the best child in the world. Although it doesn't have any special appearance, being the best child in the world.

And in that little kitchenette, with bare toes on the cold floor and the morning light over the pineapple, Lucas found that although life was sometimes difficult, he was happy.

 

View full details