Skip to product information
1 of 2

svavs

Rakel

Rakel

Regular price 8.000 ISK
Regular price Sale price 8.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.
Quantity

Stærð: - H:34cm x B:18cm

Rakel vinnur í blómabúð sem heitir Blómahúsið en lítur meira út eins og staður sem selur mjög dýrar jarðarfarir fyrir plöntur. Eigandinn heitir Unnur og talar um túlípana eins og þeir séu viðkvæmir listamenn með drykkjuvandamál. Rakel mætir alltaf fimm mínútum of seint með kaffibolla sem hún lofaði sjálfri sér að kaupa ekki. Hún hengir upp úlpuna sína, kveikir á litla útvarpinu við kassann og byrjar daginn á því að bjarga plöntum sem starfsfólkið gleymdi að vökva daginn áður. Hún býr ein í íbúð á annarri hæð fyrir ofan tannlæknastofu. Á kvöldin heyrir hún stundum fólk stynja niðri meðan hún er að sjóða núðlur og það hefur eyðilagt ótrúlega mörg rómantísk kvöld fyrir henni. Svo nú er hún alfarið hætt að deita eða hitta fólk.

Rakel á þrjá diska, sjö kaffibolla og eina pönnu sem hallar aðeins til vinstri. Hún hélt alltaf að hún myndi verða svona manneskja sem á fallegt heimili með samstæðum handklæðum en það virðist satt að segja ekki vera í hennar eðli.

Á laugardögum fer hún í matvörubúðina með mjög skýran innkaupalista: klósettpappír, pasta, tómata, sjampó.

Svo kemur hún heim með: enn einn kertastjaka, ferskt basil, ananas, og einhvern mjög sérstakan ost sem hún hafði aldrei séð áður.

Rakel er líka búin að vera á leiðinni að fara að byrja að hreyfa sig síðan 2019. Hún borgar enn í ræktina af því henni finnst óþægilegt að segja upp áskriftinni. Einu samskiptin hennar við staðinn síðustu mánuði hafa verið þegar hún fékk tölvupóstinn: “Við söknum þín ❤️” Henni fannst það persónulega mjög aggressívt.

Í vinnunni kemur reglulega inn maður sem kaupir eina rós á hverjum föstudegi. Enginn veit fyrir hvern hún er. Rakel og samstarfskona hennar eru með sex mismunandi kenningar um málið og ræða þær af þeirri alvöru sem venjulega er frátekin fyrir rannsóknarlögreglu.

Rakel sjálf hefur aldrei verið sérstaklega dramatísk. Hún gleymir hlutum bara stöðugt, brennir sig reglulega á of heitu kaffi og talar stundum við fólk á meðan hún er með tyggjó fast í hárinu án þess að taka eftir því.

---

Rakel works at a flower shop called The Flowerhouse, but it looks more like a place that sells very expensive funerals for plants. The owner is called Unnur and talks about tulips as if they were sensitive artists with a drinking problem. Rakel always shows up five minutes late with a cup of coffee that she promised herself she wouldn’t buy. She hangs up her coat, turns on the small radio at the register and starts her day by rescuing plants that the staff forgot to water the day before. She lives alone in an apartment on the second floor above a dentist’s office. At night, she sometimes hears people moaning downstairs while she’s boiling noodles, and it has ruined countless romantic evenings for her. So now she’s stopped dating or meeting people altogether.

Rakel has three plates, seven coffee cups and one frying pan that leans slightly to the left. She always thought she would be the kind of person who has a beautiful home with matching towels, but honestly, that doesn’t seem to be in her nature.

On Saturdays, she goes to the supermarket with a very clear shopping list: toilet paper, pasta, tomatoes, shampoo.

Then she comes home with: another candleholder, fresh basil, pineapple and some very special cheese she had never seen before.

Rakel has also been on her way to starting to exercise since 2019. She still pays for the gym because she feels uncomfortable canceling her subscription. Her only interaction with the place in the last few months has been when she received the email: “We miss you ❤️” She personally found it very aggressive.

At work, a man regularly comes in who buys one rose every Friday. No one knows who it is for. Rakel and her colleague have six different theories about the matter and discuss them with the seriousness usually reserved for detectives.

Rakel herself has never been particularly dramatic. She just constantly forgets things, regularly burns herself on too-hot coffee and sometimes talks to people while she has gum stuck in her hair without noticing.

 

View full details