Skip to product information
1 of 2

svavs

Siggi Einhenti

Siggi Einhenti

Regular price 8.000 ISK
Regular price Sale price 8.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.
Quantity

Stærð: - H:34cm x B:18cm

Þetta er Siggi Einhenti eða Siggi sem týndi hendinni en fann karakter eins og hann kallar sig sjálfur á góðum dögum. Þegar Siggi var lítill var hann með tvær alveg venjulegar hendur og mjög litla framtíðarsýn. Hann ætlaði annaðhvort að verða trymbill, kafari eða maður sem situr inni í Krambúð og segir „nei posinn er niðri”.

Svo einn daginn gerðist slysið. Hann sofnaði í sófanum hjá ömmu sinni á meðan hún var að hekla og þegar hann vaknaði hafði önnur höndin hans einfaldlega… farið.

Fjölskyldan leitaði alls staðar, í sófanum, í frystikistunni, inni í Toyota Yarisinum og einu sinni í potti af kjötsúpu af því afi hans varð stressaður og hugsaði ekki skýrt. Engin hönd. En Siggi tók þessu furðu vel. „Kannski varð hún bara leið á mér,” sagði hann og fékk sér ristað brauð.

Árum síðar kom hins vegar sannleikurinn í ljós. Höndin hafði ekki dáið. Hún hafði flúið. Núna býr hún einhvers staðar á Akureyri undir nafninu Steinunn og vinnur líklega á handverksmarkaði. Siggi vill ekki tala mikið um það. „Við þurftum bæði pláss til að vaxa,” segir hann alltaf og klórar sér á hökunni til að reyna að líta út fyrir að vera spekingslegur.

Maginn á honum varð líka stór eftir slysið. Það var ekkert endilega af því að hann borðaði mikið, þó hann eigi mjög flókið samband við kanilsnúða, það var öllu heldur út af því að allar ósagðar tilfinningar söfnuðust í maganum á honum eins og loft í sunddýnu. 

Samt er Siggi furðu hamingjusamur maður. Hann gengur um bæinn á litlu tánum sínum, daðrar við afgreiðslufólk í bakaríum og brosir eins og hann viti eitthvað sem aðrir vita ekki. Sem flestir vita samt að er ekki satt.

---

This is Siggi One-hand, or Siggi who lost his hand but found character, as he calls himself on good days. When Siggi was little, he had two completely normal hands and very little vision for the future. He planned to either become a drummer, a diver, or a man who sits inside a 7-Eleven and says “no, the register is down stairs”.

Then one day the accident happened. He fell asleep on his grandmother’s couch while she was crocheting and when he woke up, one of his hands was simply… gone.
The family searched everywhere, on the couch, in the freezer, inside the Toyota Yaris and once in a pot of meat soup because his grandfather was stressed and not thinking clearly. No hand. But Siggi took it surprisingly well. “Maybe it just got tired of me,” he said and ate some toast.

Years later, however, the truth came out. The hand hadn’t died. It had fled. Now she lives somewhere in Akureyri under the name Steinunn and probably works at a craft market. Siggi doesn't want to talk much about it. "We both needed room to grow," he always says, scratching his chin to try to look wise.

His stomach also got big after the accident. It wasn't necessarily because he ate a lot, although he has a very complicated relationship with cinnamon rolls, it was more because all the unspoken feelings collected in his stomach like air in a swimming mattress. 

Yet Siggi is a surprisingly happy man. He walks around town on his little toes, flirts with bakery clerks and smiles as if he knows something that others don't. Which most people know isn't true.

View full details