Skip to product information
1 of 2

svavs

Sjáðu mig. Fyrsta verk.

Sjáðu mig. Fyrsta verk.

Regular price 35.000 ISK
Regular price Sale price 35.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.
Quantity

Stærð: H: 55cm x B: 70cm.

“Sjáðu mig” var þátttökugjörningur þar sem listamaður sat fyrir og gestir tóku þátt í að mála eina sameiginlega mynd.

Fyrir framan hann var strigi á trönum og á borði við hliðina voru litir, vatn og penslar.

Verkið snýst um nærveru, athygli, samveru og tíma.
Það fjallar um að sjá og vera séð, hvort sem er með augunum einum og eða opnu hugarfari og innsæi.

Gestir máttu einnig spyrja listamanninn spurninga, hvort sem það er af forvitni eða til að sjá hann betur.

Verkið bauð upp á stund þar sem fólk fékk að vera hluti af ferli án þess að þurfa að ná árangri eða fullkomnun. 

Hver þátttakandi hafði hálfa mínútu til að mála.
Þessi stutti tími skapaði rými þar sem hugsun og stjórn viku fyrir innsæi og leikgleði. Þannig varð myndin lifandi, óútreiknanleg og heiðarleg, rétt eins og lífið sjálft.

Litir blandast, form renna saman og það sem það sat eftir var stóra myndin (The Big Picture) sem vísar í það að þó þú skiptir óendanlega miklu máli, þá skiptiru ekki öllu máli því þú ert ekki einn í heiminum. Þú ert partur af heild. Mikilvægur partur, af heild. Og svo það sé sagt þá er ég mjög þakklát fyrir það að þú sért hérna. Ekkert endilega fyrir mig, heldur fyrir þá sem eru í þínu lífi og vilja hafa þig í sínu lífi.

Það sem við gerum hefur oft áhrif sem við vitum jafnvel ekki af.
Kannski hvarf liturinn sem þú málaðir undir annan lit, en samt áttir þú þátt í að skapa heildina. Þú gætir hafa veitt næstu manneskju innblástur. Kannski tókstu fyrsta skrefið, sem er oft talið vera erfiðasta skrefið.

Þetta er einmitt kjarni verksins: að minna á að við skiljum alltaf eitthvað eftir, jafnvel þótt enginn sjái það lengur.

Á borðinu lá blað þar sem hægt var að skrifa nafn sitt, fyrir þá sem það vildu. 

Myndin sem varð til var sameiginlegt verk margra; sambland sjónarhorna, ákvarðana og augnabliks sem gerast í sameiginlegu flæði.

---

“See Me” was a participatory performance where an artist sat in front of the audience and guests participated in painting a single collective picture.

In front of him was a canvas and on a table next to it were paints, water and brushes.

The work is about presence, attention, togetherness and time.
It is about seeing and being seen, whether with one’s eyes alone or with an open mind and intuition.

Guests were also allowed to ask the artist questions, whether out of curiosity or to see him better.

The work offered a moment where people could be part of a process without having to achieve success or perfection.

Each participant had half a minute to paint.

This short time created a space where thought and control gave way to intuition and playfulness. In this way, the picture became alive, unpredictable and honest, just like life itself.

Colors blend, shapes merge, and what was left was The Big Picture, which suggests that although you matter infinitely, you don't matter all that much because you are not alone in the world. You are part of a whole. An important part, of a whole. And that being said, I am very grateful that you are here. Not necessarily for me, but for those who are in your life and want you in theirs.

What we do often has an impact that we are not even aware of.

Maybe the color you painted under another color disappeared, but you still played a part in creating the whole. You may have inspired the next person. Maybe you took the first step, which is often considered the hardest step.

This is precisely the essence of the work: to remind us that we always leave something behind, even if no one sees it anymore.

On the table was a sheet of paper where you could write your name, for those who wanted to.

The resulting film was the collective work of many; a combination of perspectives, decisions, and moments happening in a shared flow.

View full details