Skip to product information
1 of 5

My Store

Þokukennd kortlagning tilverunnar

Þokukennd kortlagning tilverunnar

Regular price 25.000 ISK
Regular price Sale price 25.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.
Quantity

Heimurinn er oft eins og þessi mynd: óskýr, blautur, á mörkum þess að leysast upp og þorna. Fyrir þá sem skynja og hugsa öðruvísi, er raunveruleikinn sjaldan beinn, sjaldan skýr. Hann er regnbogalitaður, en ekki beint gleðilitaður. Hann er sundurlaus og óreglulegur, og þó hann virðist mjúkur og fagur, getur hann einnig verið köld og loðin mótsaögn. En af og til er hann þó í rauninni frábær.

Efst í verkinu birtist þessi dæmigerði kassi – dökkur og ákveðinn, eins og hann hafi fengið samþykki áður en hann steig fram. Hann stendur fyrir stöðugleika sem lofað var en aldrei skilaði sér, fyrir kerfið sem vill útskýra allt með ferhyrndum lausnum, jafnvel þegar enginn passar alveg í formið.

Áferðin í kringum kassann er móðuð og sviðin, eins og tilvera sem hefur reynt að laga sig að en orðið fyrir bruna, oftar en oft. Litirnir sem flæða um verkið – rauðir, bláir, fjólubláir, grænir – eru tilfinningar og hugsanir sem eiga sér engin orð, aðeins liti. Þeir renna saman, flæða út fyrir mörkin, blandast og hverfa, alveg eins og lífið sjálft þegar maður reynir að festa það niður með skynsemi.

Litlu punktarnir hægra megin virðast fyrst eins og stígandi, skref í átt að einhverju. En þau fara ekki í beina línu. Þau eru dreifð, eins og það vanti stiga, stuðning, eða einfaldlega leiðarvísir. Þau eru tilraun til að hreyfa sig áfram í veröld sem hvorki styður né skilur. Skrefin sem aldrei lenda, draumar sem fjarar út áður en þeir festa rætur.

Það er eitthvað harmrænt við þetta verk, en líka eitthvað seiðandi fallegt. Eins og tilvistin sjálf – brothætt, en lífsseig. Óljós, en full af smáatriðum sem tala ef þú hættir að 'reyna' að skilja og byrjar að skynja.

2019

Stærð með ramma - H:42,4cm x B:32,4cm

 

View full details