My Store
Verk í vinnslu
Verk í vinnslu
Couldn't load pickup availability
Ég lá í sófanum svo vikum skipti eins og slitið tau, föst í eigin líkama sem var bæði skjól og fangelsi. Eins og þessi fígúra í málverkinu, augu sem stara út í tómið, með hönd sem teygir sig út í ómögulega átt. Ég man hvernig það var að teygja sig en ekki komast neitt. Að reyna að halda áfram þegar allt í kringum mig var óskiljanlegt og í uppnámi.
Ég mætti með skottið á milli lappanna, skíthrædd við það sem koma skyldi og það kom sem vildi koma og nú er ég ný kona.
Ég hef brotist út úr skuggunum sem umkringdu mig. Þessi handleggur í málverkinu er eins og mín eigin von, þó skelfing og óvissa hafi grípað mig. Það er eitthvað óútreiknanlegt í þessum litum, eins og þeir dansi á milli lífs og dauða og ég stend þarna á milli tilbúin að taka við því sem lífið hefur upp á að bjóða, þó ég viti ekki hvað það er.
Ég er ekki lengur týnd. Ég er enn óörugg, en ég er líka sterkari. Nú er þessi kona í speglinum, og í málverkinu, tilbúin að mæta sjálfri sér, og öllum sínum skrímslum (ish). Þetta málverk er minning um það þegar ég var föst og líka vitnisburður um að ég er komin áfram. Einn dagur í einu.
2011-2025
Stærð með ramma - H:21,3cm x B:62cm
Share
